Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. apríl 2019 16:00
Elvar Geir Magnússon
Jan Oblak framlengir við Atletico
Jan Oblak.
Jan Oblak.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Jan Oblak hefur skrifað undir samning við Atletico Madrid til 2023.

Fyrri samningur Slóvenans var til 2021.

Þessi 26 ára leikmaður hefur verið sterklega orðaður við Paris Saint-Germain en fær ríflega launahækkun með nýja samningnum.

Oblak hefur verið aðalmarkvörður Atletico undanfarin fjögur ár og það var forgangsatriði hjá félaginu að framlengja samningi hans.

Atletico er í öðru sæti í La Liga en heil níu stig eru upp í toppsætið þar sem Barcelona situr.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner