Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. apríl 2019 15:45
Arnar Daði Arnarsson
Selfoss fær nýjan markvörð (Staðfest)
Caitlyn Clem ekkert með í sumar vegna meiðsla
Alfreð Elías og Kelsey Wys.
Alfreð Elías og Kelsey Wys.
Mynd: Selfoss
Selfoss hefur samið við bandaríska markvörðinn Kelsey Wys um að leika með liðinu í Pepsi Max deild kvenna í sumar.

Selfoss hafði áður framlengt samning markvarðarins Caitlyn Clem til tveggja ára en hún meiddist illa í sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum í vetur og mun ekki leika knattspyrnu í sumar.

Wys er reyndur markvörður, 28 ára gömul, en hún kemur til Selfoss frá Washington Spirit í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hún var liðsfélagi Dagnýjar Brynjarsdóttur hjá háskólaliði FSU áður en hún var valin átjánda í nýliðavali bandarísku atvinnumannadeildarinnar til Western New York Flash árið 2014.

Wys hefur verið á mála hjá Washington Spirit frá árinu 2015 en árið 2016 var hún lánuð til Newcastle Jets í Ástralíu þar sem hún meiddist í þriðja leik. Hún sneri aftur inn á völlinn í æfingaleikjum hjá Washington Spirit á síðasta ári.

Wys hefur leikið með flestum yngri landsliðum Bandaríkjanna, síðast með U23 ára liðinu árið 2013.

Komnar:
Cassie Boren frá Bandaríkjunum
Kelsey Wys frá Bandaríkjunum

Farnar:
Alexis Kiehl
Allyson Haran
Dagný Rún Gísladóttir
Eyrún Gautadóttir
Írena Gestsdóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner