Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 19. apríl 2019 16:30
Arnar Helgi Magnússon
Howe fékk óvænta köku á blaðamannafundi
Mynd: Getty Images
Eddie Howe kom af fjöllum þegar blaðamaður afhenti honum köku á blaðamannafundi í morgun. Bournemouth mætir Fulham í ensku úrvalsdeildinni á morgun, laugardag.

Ástæðan fyrir kökunni er sú að á morgun stýrir Howe sínum fimmhundruðasta leik sem stjóri.

„Ég vissi ekki að þetta væru svona margir leikir fyrr en að þið sögðuð mér það. Hvert hefur tíminn farið? Ég hélt að þetta væru færri leikir," sagði Howe.

En hvaða leikur stendur uppúr hjá Howe?

„Leikurinn gegn Bolton þegar við (Bournemouth) tryggðum okkur sæti í ensku úrvalsdeildinni. Ég hélt að það væri ekki fræðilegur möguleiki að sá dagur kæmi."

Howe hefur nú stýrt Bournemouth samfleytt frá árinu 2012 en þar á undan stýrði hann Burnley í eitt tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner