Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. apríl 2019 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Parker vill taka við Fulham til frambúðar
Scott Parker.
Scott Parker.
Mynd: Getty Images
Scott Parker tók við Fulham til bráðabirgða í lok febrúar eftir að Claudio Ranieri var rekinn.

Það er nú þegar ljóst að Fulham mun leika í Championship deildinni á næsta tímabili þar sem þeir eru fallnir úr úrvalsdeildinni.

Parker er áhugasamur um að taka við liðinu til frambúðar.

„Þetta er í vinnslu og það eru viðræður í gangi," sagði Parker.

„Við erum að ræða um næstu skref og næsta tímabil. Þessi leikmannahópur er kominn með reynslu í úrvalsdeildinni og við viljum komast hingað sem fyrst aftur," sagði Parker eftir 0-1 sigur Fulham á Bournemouth í gær.
Athugasemdir
banner
banner