Gylfi Þór Sigurðsson var valinn maður leiksins fyrir frammistöðu sína gegn Manchester United í gær.
Gylfi bæði skoraði gott mark og lagði upp fyrir Theo Walcott. Gylfi fékk 9 í einkunn fyrir frammistöðu sína.
Idrissa Gana Gueye setti inn skemmtilega færslu á Twitter eftir leik þar sem hann er kominn heim til sín og heldur á verðlaunum sem Gylfi fékk fyrir að vera valinn maður leiksins hjá Sky Sports.
Skilaboð Gueye eru þau að ef Gylfi er að leita að verðlaununum má fólk benda á að Gueye hafi stolið þeim.

If @gylfisig23 is looking for his MOTM Award someone tell him I stole it 😉. Good performance from the team today! #COYB 💙 pic.twitter.com/LuUWzX7jjv
— Idrissa Gana Gueye (@IGanaGueye) April 21, 2019
Athugasemdir