Það er til mikils að vinna í Draumaliðsdeild Eyjabita en hægt er að skrá lið til leiks þar til klukkutíma fyrir leik Vals og Víkings R. í fyrstu umferð Pepsi-Max deildarinnar á föstudagskvöldið.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Stórglæsileg verðlaun
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins í ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík.
Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með VITA ferðum (að andvirði 240 þúsund krónur) sem og harðfisk frá Eyjabita.
Eyjabiti gefur reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar í sumar.
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Fyrsta umferðin í Pepsi-deildinni hefst 26. apríl en þann dag lokar markaðurinn. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir