Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. apríl 2019 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verðskuldaði brot David Silva rautt spjald?
David Silva.
David Silva.
Mynd: Getty Images
Andreas Pereira lá eftir.
Andreas Pereira lá eftir.
Mynd: Getty Images
David Silva, miðjumaður Manchester City, er ekki á leið í leikbann þrátt fyrir ljótt brot á Andreas Pereira, leikmanni Manchester United, í leik liðanna í gær.

Silva hoppaði upp til að skalla bolta en fór svo með vinstri fótinn í maga Pereira sem lá eftir.

Silva var ekki spjaldaður af dómaranum Andre Marriner, en þar sem dómarinn sá atvikið þá mun Silva ekki fara í bann.

Gary Neville, sem var að lýsa leiknum, fannst að Silva hefði átt að fá rauða spjaldið.

„David Silva er mjög heppinn. Dómarinn sér þetta, mér finnst þetta rautt spjald. Hann hefur verið frábær í kvöld og þetta er ekki í hans karakter. Maður sér hann vanalega ekki taka kung-fu spörk. Mjög heppinn," sagði Neville.

Mark Clattenburg, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, segir einnig að Silva hafi verið mjög heppinn.

Atvikið má sjá hérna.

Titilbaráttan
Silva verður því með í síðustu þremur deildarleikjum City á tímabilinu. Það er ótrúleg spenna í titilbaráttunni, en City er með eins stigs forystu á Liverpool fyrir síðustu þrjár umferðirnar.

Hér að neðan má sjá þá leiki sem þessi lið eiga eftir á tímabilinu.

Leikirnir sem Liverpool á eftir:
Huddersfield (heima)
Newcastle (úti)
Wolves (heima)

Leikirnir sem Man City á eftir:
Burnley (úti)
Leicester (heima)
Brighton (úti)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner