Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. apríl 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telegraph: Richarlison til Man Utd?
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er líklegur til þess að taka til í leikmannahópi félagsins í sumar.

Einn af þeim leikmönnum sem er hins vegar orðaður við komu til Manchester United er Brasilíumaðurinn Richarlison sem spilar hjá Everton.

United er sagt ætla að kaupa fimm til sex leikmenn í sumar og The Telegraph segir að Richarlison sé einn af þeim.

Richarlison kom til Everton frá Watford fyrir þessa leiktíð og kostaði 35 milljónir punda sem getur hækkað upp í allt að fimmtíu milljónir punda.

Richarlison hefur skorað þrettán mörk í deildinni á leiktíðinni og getur spilað bæði á kanti sem og sem fremsti maður.
Athugasemdir
banner
banner