Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 26. apríl 2019 07:30
Elvar Geir Magnússon
Ívar Orri dæmir stórleik fyrstu umferðar
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Búið er að tilkynna hvaða dómarar verða að störfum í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Opnunarleikur Vals og Víkings er í kvöld en aðrir leikir umferðarinnar verða á morgun.

Lögregluvarðstjórinn Pétur Guðmundsson dæmir opnunarleikinn en stórleikur umferðarinnar verður á laugardagskvöld þegar Stjarnan fær KR í heimsókn.

Ívar Orri Kristjánsson mun dæma stórleikinn en aðstoðardómarar verða Bryngeir Valdimarsson og Eðvarð Eðvarðsson. Jóhann Ingi Jónsson er varadómari.

Hér að neðan má annars sjá hverjir halda um flauturnar í fyrstu umferð:

föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. - Pétur Guðmundsson

laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik - Einar Ingi Jóhannsson
14:00 ÍBV-Fylkir - Egill Arnar Sigurþórsson
16:00 FH-HK - Helgi Mikael Jónasson
16:00 ÍA-KA - Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
20:00 Stjarnan-KR - Ívar Orri Kristjánsson

SJÁ EINNIG:
Þorvaldur Árnason útskýrir breytingarnar á knattspyrnulögunum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner