Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. maí 2019 16:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Sig tilnefndur sem leikmaður aprílmánaðar í Rússlandi
Mynd: Getty Images
Arnór Sigurðsson, leikmaður CSKA í Moskvu, hefur átt frábæran aprílmánuð í rússnesku úrvalsdeildinni.

Hann skoraði tvö mörk gegn Spartak i Moskvuslag. Í kjölfarið var hann valinn leikmaður 22. umferðar í úrvalsdeildinni. Þá skoraði hann einnig mark gegn Anzhi í mánuðinum sem var að líða.

Arnór er nítján ára og verður tvítugur þann fimmtánda maí.

Arnór er einn af átta leikmönnum sem hægt er að kjósa sem leikmann aprílmánaðar.

Nafn Arnórs (Арнор Сигурдссон) er efst á listanum þegar þú smellir hér.

Leik­menn­irn­ir sem voru til­nefnd­ir ásamt Arnóri: Sebastián Driussi, Artem Dzyuba, Sardar Azmoun, Jéfferson Farfán, Ravanelli, Sylvester Igboun og Matvei Safonov
Athugasemdir
banner
banner
banner