Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 15. maí 2019 18:21
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið ÍA og FH: Vignir í markið hjá FH en annað óbreytt
Vignir er í markinu hjá FH.
Vignir er í markinu hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óttar Bjarni hefur verið sjóðheitur í markaskorun hjá ÍA og á fast sæti í hjarta varnar liðsins. Hann byrjar í dag.
Óttar Bjarni hefur verið sjóðheitur í markaskorun hjá ÍA og á fast sæti í hjarta varnar liðsins. Hann byrjar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 hefst viðureign ÍA og FH í fjórðu umferð Pepsi Max-deildar karla en liðin hafa byrjað mótið á nákvæmlega sama hátt með tveimur sigrum og einu jafntefli. Því eru í 2. -3. sæti deildarinnar með 7 stig og 3 mörk í plús á markatölu.

Byrjunarliðin eru nú klár og þau má sjá hér að neðan. Lið ÍA er óbreytt frá 1-2 sigrinum á Íslandsmeisturum Vals um helgina og FH gerir litlar breytingar líka, því eina breytingin á þeirra liði er að Vignir Jóhannesson kemur í markið í stað Gunnar Nielsen sem verður frá keppni næstu mánuði eftir handarbrot.

Það vekur helst athygli að FH nær ekki að manna 18 manna hóp því aðeins 17 eru á leikskýrslu hjá þeim í dag en ástæða þess ku vera sú að 2. flokkur á leik í dag og leikmenn sem eru gjaldgengir þar að spila með honum.

Textalýsing frá leiknum.

Byrjunarlið ÍA
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
3. Óttar Bjarni Guðmundsson
5. Einar Logi Einarsson
8. Hallur Flosason
10. Tryggvi Hrafn Haraldsson
11. Arnar Már Guðjónsson
17. Gonzalo Zamorano
18. Stefán Teitur Þórðarson
19. Bjarki Steinn Bjarkason
93. Marcus Johansson

Byrjunarlið FH
12. Vignir Jóhannesson (m)
4. Pétur Viðarsson
5. Hjörtur Logi Valgarðsson
6. Björn Daníel Sverrisson
8. Kristinn Steindórsson
9. Jónatan Ingi Jónsson
11. Atli Guðnason
16. Guðmundur Kristjánsson (f)
21. Guðmann Þórisson
22. Halldór Orri Björnsson
29. Þórir Jóhann Helgason

Beinar textalýsingar:
19:15 ÍA - FH
19:15 KA - Breiðablik
19:15 Víkingur - Stjarnan
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner