Viktor Jónsson varð fyrir höfuðmeiðslum eftir að hafa lent í samstuði við leikmann Fylkis á lokasekúndum leiks ÍA gegn Fylki í Pepsi Max-deildinni fyrr í þessum mánuði.
Viktor var fluttur með sjúkrabíl eftir leikinn og í ljós kom að Viktor kinnbeinsbrotnaði.
Hann gekkst undir aðgerð vegna þess og verður frá fram í næsta mánuð.
Viktor var í kvöld upp á Akranesi og sá þar liðsfélaga sína vinna 2-0 sigur á FH.
Hér að neðan má sjá fyrstu myndina af honum eftir aðgerðina sem hann gekkst undir.
Viktor Jónsson horfir á liðsfélaga sína gegn FH. Hér er fyrsta myndin af honum eftir aðgerð. Vonandi sjáum við þennan öfluga markaskorara sem fyrst inni á vellinum aftur! #fotboltinet pic.twitter.com/gA6H5IfKLT
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) May 15, 2019
Athugasemdir