Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 16. maí 2019 15:43
Arnar Daði Arnarsson
Nemanja Latinovic lánaður í GG (Staðfest)
Nemanja.
Nemanja.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Bakvörðurinn, Nemanja Latinovic hefur verið lánaður í 4. deildarlið GG frá Grindavík.

Nemanja er fæddur árið 1995 og lék 15 leiki með Grindavík í Pepsi deildinni síðasta sumar, auk þess að spila einn leik í Mjólkurbikarnum.

Nemanja lék sinn fyrsta leik með Grindavík sumarið 2014 en hefur í heildina spilað 26 leiki með félaginu og skorað í þeim leikjum tvö mörk.

Hann hefur ekkert komið við sögu hjá Grindavík í Pepsi-Max deildinni í sumar.

GG er með þrjú stig að loknum einum leik í C-riðli 4. deildar en liðið mætir Álafossi í næstu umferð á þriðjudaginn næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner