Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. maí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Everton tilbúið að selja Bolasie á 7 milljónir punda
Bolasie var keyptur til Everton á 25 milljónir punda 2016.
Bolasie var keyptur til Everton á 25 milljónir punda 2016.
Mynd: Getty Images
Everton er tilbúið að selja kantmanninn Yannick Bolasie á 7 milljónir punda í sumar.

Everton borgaði Crystal Palace 25 milljónir punda til þess að fá Bolasie sumarið 2016. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn og er Everton tilbúið að selja hann í sumar.

Samkvæmt Goal.com þá eru bæði Newcastle og Southampton að reyna að fá hann. Einnig eru Besiktas og Galatasaray í Tyrklandi áhugasöm sem og Lille frá Frakklandi.

Bolasie, sem er 29 ára, var lánaður til Aston Villa og Anderlecht á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner