„Við vorum lélegir í dag og áttum ekki mikið meira skilið," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir tap gegn Grindavík í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 1 KR
„Það skiptir máli að við nýtum ekki fyrstu færin okkar í upphafi leiks. Þetta var brekka í seinni hálfleik en við höfðum nægan tíma til að jafna. Þegar við minnkum muninn eru 20-25 mínútur eftir af leiknum. Við spilum ekki vel úr því."
„Við vorum ólinmóðir og bráðir á okkur. Við hefðum átt að spila hægar."
Atli Sigurjónsson var tekinn af velli í hálfleik. Það var taktísk ákvörðun.
„Atli var ekki verri en hver annar í liðinu. Við vorum allir lélegir í fyrri hálfleik. Við þurftum að gera eitthvað til að breyta því við vorum skeflilega lélegir í fyrri hálfleiknum."
Rúnar lét ekki menn heyra það í hálfleiknum.
„Það er engin bót af því. Þetta eru ekki krakkar. En við þurftum samt að ræða alvarlega um hlutina. Við höfðum trú á því að við gætum snúið þessu við og við vorum ekki langt frá því."
Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir