Sóknarmaðurinn Mauro Icardi hjá Inter sendi frá sér yfirlýsingu í dag. Þar segist hann hafa tjáð félaginu að hann vilji vera áfram í herbúðum þess.
Það hefur gustað vel kringum Icardi á tímabilinu og var hann fyrr á tímabilinu sviptur fyrirliðabandinu. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Juventus.
Það hefur gustað vel kringum Icardi á tímabilinu og var hann fyrr á tímabilinu sviptur fyrirliðabandinu. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Juventus.
„Margir fjölmiðlar eru með fréttir sem endurspegla alls ekki minn hug eða áætlanir. Ég vil vera áfram hjá Inter, félagið er mér sem fjölskylda," sagði Icardi í yfirlýsingu sinni.
„Ég vil koma í veg fyrir allan misskilning. Fjölmiðlar hafa áhuga á að birta falsfréttir svo ég vil koma hreint út. Forza Inter, alltaf."
Athugasemdir