Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 19. maí 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Carragher í góðum gír um síðustu helgi
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildartímabilinu lauk um síðustu helgi og hafði Liverpool betur gegn Wolves, 2-0, í lokaumferðinni.

Því miður fyrir Jürgen Klopp og lærlinga hans tókst liðinu ekki að hreppa Englandsmeistaratitilinn þrátt fyrir ótrúlegt tímabil.

Jamie Carragher er mikill stuðningsmaður Liverpool og var hann að sjálfsögðu að skemmta sér með öðrum stuðningsmönnum eftir lokaumferðina.

Hann var kominn í mikið stuð og sýndi skemmtilega takta er hann hélt uppi fjörinu í fögnuðinum. Hann söng og dansaði uppi á sviði með bjór í hendi og að sjálfsögðu var tekið myndband af honum, sem má sjá hér fyrir neðan.

Tímabilið er þó alls ekki búið fyrir Liverpool. Framundan er úrslitaleikur Meistaradeildarinnar. gegn Tottenham 1. júní.




Athugasemdir
banner
banner
banner