Mídas 3 - 1 Samherjar
1-0 Björn Már Ólafsson ('21)
2-0 Stefán Gunnar Jóhannsson ('51)
3-0 Þór Steinar Ólafs ('75)
3-1 Baldvin Ingvason ('87)
1-0 Björn Már Ólafsson ('21)
2-0 Stefán Gunnar Jóhannsson ('51)
3-0 Þór Steinar Ólafs ('75)
3-1 Baldvin Ingvason ('87)
Mídas og Samherjar áttust við í A-riðli 4. deildar karla á þessum sunnudegi.
Björn Már Ólafsson, sem er sérfræðingur um ítalska boltann, skoraði fyrsta mark leiksins á 21. mínútu. Hann lýsir því sem fallegasta marki ferilsins á Twitter.
Staðan 1-0 í hálfleik fyrir Mídas en snemma í seinni hálfleiknum bætti Stefán Gunnar Jóhannsson við marki fyrir Mídas. Þór Steinar Ólafs gerði þriðja markið þegar stundarfjórðungur var eftir.
Baldvin Ingvason minnkaði muninn fyrir Samherja áður en leiknum lauk. Lokatölur 3-1 fyrir Mídas. Þessi sigur var eftir bókinni miðað við spá Magga Bö Þetta var fyrsti leikur hjá báðum liðum.
Vinstri löppin er ekki dauð úr öllum æðum. Fallegasta mark ferilsins í dag. pic.twitter.com/ZRsRwAmXHm
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) ১৯ মে, ২০১৯
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir