„Mér fannst við vera að ná yfirtökum í leiknum þegar mörkin koma," sagði Sigurður Þ Sigurþórsson, þjálfari ÍR, eftir 2-0 tap gegn Augnablik í Inkasso-deildinni í dag.
„Eftir mikla baráttu í fyrri hálfleik þá fannst mér liðið vera að stíga upp og komast í færi. Það hefði bara þurft eitt mark og þá hefði þessi leikur snúist á haus."
ÍR tapaði 10-0 gegn Þrótti R. í fyrstu umferðinni.
„Við fórum í grunninn, að þétta okkur aðeins til baka, spila þéttari varnarleik. Það munar líka miklu um að fá góðan liðsstyrk frá Stjörnunni og Val. Við vorum búin að leita að leikmönnum lengi. Við gátum sett stelpurnar sem voru á miðjunni niður í vörn, sem eru vanar því að spila vörn. Það breytir heildarsvipnum á liðinu."
„Við horfum á þetta þannig að við erum fyrst og fremst að reyna að bæta okkur í fótbolta. Við vissum það sjálf að við erum aðeins fyrir aftan þessi lið ennþá."
„Það var kannski aðeins oft stórt að tapa 10-0 í fyrsta leik, en það var kannski sviðsskrekkur líka. Það var ekki vel gert að skella okkur í sjónvarpsleik í fyrsta leik. En svona er þetta, maður fær ekki að velja það."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir