Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. maí 2019 19:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stuðningsmenn kusu mark Gylfa það besta á tímabilinu
Gylfi fagnar markinu.
Gylfi fagnar markinu.
Mynd: Getty Images
Gylfi átti mjög gott tímabil með Everton.
Gylfi átti mjög gott tímabil með Everton.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson átti mark leiktíðarinnar hjá Everton. Magnað mark hans gegn Leicester var kosið það besta af stuðningsmönnum.



Gylfi hafði betur gegn Lucas Digne og Andre Gomes. Aukaspyrnumark Digne gegn Watford í desember og flott mark Andre Gomes gegn Wolves voru einnig tilnefnd.

„Við spilum fótbolta fyrir stuðningsmennina og þeir horfa á alla leiki okkar. Það er sérstakt að vinna þessi verðlaun þegar stuðningsmennirnir kjósa um þau," sagði Gylfi við Evertontv.

„Ég man eftir að hafa hlaupið til þeirra eftir að ég sá boltann fara inn. Það var búið að rigna og grasið var blaut þannig að það var hentugt að renna sér til þeirra."

„Sjúkraþjálfararnir voru ekki ánægðir með fagnið en þetta var fullkomið."

Gylfi átti virkilega gott tímabil með Everton og var hann markahæsti leikmaður liðsins ásamt Richarlison með 14 mörk í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner