Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mán 20. maí 2019 21:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lennon: Erum með langbesta liðið í deildinni
Steven Lennon.
Steven Lennon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Undirbúningstímabilið var langt og erfitt fyrir mig," sagði Steven Lennon, framherji FH, eftir 3-2 sigur á Íslandsmeisturum Vals í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 3 -  2 Valur

Meiðsli hafa verið að angra Lennon og var hann aðeins að koma við sögu í annað sinn í Pepsi Max-deildinni í sumar.

„Ég hef verið að glíma við meiðsli frá síðasta tímabili. Ég er ekki í fullkomnu standi en ég get að minnsta kosti fengið einhverjar mínútur og hjálpað liðinu. Þetta eru meiðsli þar sem er óvitað hvað vandamálið nákvæmlega er. Ég fór í þriðju sprautumeðferðina og það virðist hafa hjálpað."

Á þeim stutta tíma sem hann var inn á í kvöld þá tókst honum að skora og leggja upp. Mark Lennon var einstaklega flott. Hann skoraði með viðstöðulausu skoti utarlega í teignum.

„Þetta var góður sigur. Ég held enn að Valur verði við toppinn í lok sumars. Þeir spiluðu góðan bolta og settu okkur undir pressu. Við erum að elta ÍA."

„Ég tel að við séum langbesta liðið í deildinni. Við erum með frábæran hóp og verðum enn sterkari þegar ég og Davíð verðum aftur heilir. Það eru engir 11 leikmenn betri en þeir sem við erum með hjá FH."
Athugasemdir
banner
banner