Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   mán 20. maí 2019 22:12
Þorgeir Leó Gunnarsson
Rúnar Kristins: Ég var mjög stressaður
KR nálgast toppliðin
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tók á móti HK í fimmtu umferð Pepsi Max deildarinnar í kvöld. Heimamenn komumst í 3-0 og virtist sigurinn ætla að verða ansi öruggur en tvö mörk frá HK undir lokin hleyptu spennu í leikinn. Nær komust gestirnir þó ekki og 3-2 sigur KR því staðreynd.

Rúnar Kristinsson þjálfari KR var sáttur með þrjú stig í lok leiks en viðurkennir að hann hafi verið orðinn ansi stressaður í lokin.

„Já ég verð að viðurkenna það, ég var mjög stressaður. Ég var líka stressaður fyrir leik. HK er með gott lið. Þeir eru með gott skipulag, stóra sterka stráka og flinka leikmenn frammi sem eru stórhættulegir," sagði Rúnar eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KR 3 -  2 HK

Rúnar segir sigurinn ansi mikilvægan og var ánægður með margt í leiknum.

„Mér fannst við bara mjög agaðir í þessum leik. Gekk margt upp sem við vorum að reyna þó þetta hafi kannski ekkert verið fallegasti fótboltinn. Við þurftum bara virkilega á þremur stigum að halda í dag. Það var algjörlega nauðsynlegt og við fórum ákveðnar leiðir í því sem heppnuðust og ég er bara sáttur að ganga af velli með sigur eftir þennan darraðardans í restina."

Nánar er rætt við Rúnar í sjónvarpinu hér fyrir ofan. 
Athugasemdir
banner
banner