Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. maí 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ísland í dag - Suðurnesjaslagur í Inkasso
Keflavík mætir grönnum sínum í Njarðvík í kvöld.
Keflavík mætir grönnum sínum í Njarðvík í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir heimsækir Aftureldingu.
Fjölnir heimsækir Aftureldingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður mikið um að vera í íslenska boltanum í dag, leikið verður í Inkasso deildinni, 2. deild, 3 deild og 4. deild. Alls eru ellefu leikir á dagskrá í dag.

Fjórða umferð Inkasso deildar karla fer af stað í kvöld með þremur leikjum. Afturelding sem er í 9. sæti með þrjú stig fær Fjölni í heimsókn, Fjölnir er í 3. sæti með sex stig.

Á Ásvöllum taka heimamenn í Haukum á móti Þrótti, þessi lið hafa bæði byrjað tímabilið frekar illa. Haukar eru með tvö stig í 10. sæti og Þróttur sæti neðar með eitt stig.

Það er Suðurnesjaslagur á dagskránni í Inkasso deildinni í dag, Njarðvík sem situr í 5. sæti með sex stig tekur þá á móti toppliði Keflavíkur. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

Í 2. deild karla er einn leikur á dagskrá í dag, það er viðureign Selfoss og Víðis. Flautað verður til leiks á Selfossi klukkan 18:00. Í 3. deild fara fram þrír leikir, KH tekur á móti Vængjum Júpiters, KV fær Álftanes í heimsókn og fyrir austan mætast Höttur/Huginn og Einherji.

Fjórir leikir fara fram í dag í 4. deildinni, í A-riðli eru tveir leikir á dagskrá, þar tekur Árborg á móti Mídas og Ísbjörninn mætir Ými. Stokkseyri og Léttir mætast í C-riðli, Í D-riðli er það viðureign Kónganna og KFR.

fimmtudagur 23. maí

Inkasso deildin - 1. deild karla
19:15 Njarðvík-Keflavík (Njarðtaksvöllurinn) (Stöð 2 Sport 2)
19:15 Haukar-Þróttur R. (Ásvellir)
19:15 Afturelding-Fjölnir (Varmárvöllur - gervigras)

2. deild karla
18:00 Selfoss-Víðir (JÁVERK-völlurinn)

3. deild karla
20:00 KH-Vængir Júpiters (Valsvöllur)
20:00 KV-Álftanes (KR-völlur)
20:00 Höttur/Huginn-Einherji (Fellavöllur)

4. deild karla - A-riðill - 4. deild karla
20:00 Árborg-Mídas (JÁVERK-völlurinn)
20:00 Ísbjörninn-Ýmir (Kórinn - Gervigras)

4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
20:00 Stokkseyri-Léttir (Stokkseyrarvöllur)

4. deild karla - D-riðill - 4. deild karla
20:00 Kóngarnir-KFR (Þróttarvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner