Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. maí 2019 07:30
Oddur Stefánsson
Heimild: Football Italia 
Spalletti: Úrslitin eins og húðflúr
Mynd: Getty Images
Luciano Spaletti, stjóri Inter, sagði við leikmenn Inter að einvígi þeirra við Empoli muni lifa lengi í minni þeirra. „Úrslitin eru húðflúruð á ykkur það sem eftir er af ferli ykkar."

Inter leikur við Empoli annað kvöld. Inter þarf sigur til að tryggja sér Meistaradeildarsæti. Empoli er að berjast um að halda sér uppi.

Milan situr einu stigi á eftir Inter og Atalanta. Milan á leik við Spal sem hefur ekkert til að keppa um.

Atalanta hefur átt frábært tímabil og geta þeir einnig tryggt sér sæti í Meistaradeildinni á næsta ári með sigri gegn Sassuolo.

Spaletti sagði á blaðamannafundi „Eina sem skiptir máli núna, hvernig þú sannar þig í þessum 90 mínútum, við fyllum hausinn af því sem við þurfum til að komast í Meistaradeildina."

Inter tapaði fyrir Napoli 4-1 í síðustu umferð og þarf að vinna til að koma sér í Meistaradeildina.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner