Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. maí 2019 21:49
Ívan Guðjón Baldursson
Joao Felix: Ég er mjög ánægður hjá Benfica
Mynd: Getty Images
Joao Felix varð Portúgalsmeistari með Benfica á dögunum og er eftirsóttur af stórliðum um alla Evrópu.

Felix er aðeins 19 ára gamall og vill Benfica ekki selja hann. Hann er þó með söluákvæði sem segir hann vera falann fyrir 120 milljónir evra.

„Mér líður vel hérna. Ég elska félagið og dýrka stuðningsmennina. Ég vil njóta stundanna sem ég hef hér og svo með tímanum gæti eitthvað gerst. Ég er mjög ánægður hjá Benfica," sagði Felix.

„Við forsetinn eigum mjög gott og náið samband. Hann lítur á mig sem son og mér líkar afar vel við hann."

Benfica er búið að gefa það skýrt til kynna að Felix fer ekki á minna en 120 milljónir. 100 eða 110 milljónir eru ekki nóg.
Athugasemdir
banner
banner
banner