Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 26. maí 2019 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Diouf: Carragher réttfættur með tvo vinstri fætur
Mynd: Getty Images
El-Hadji Diouf var atvinnumaður í knattspyrnu í 18 ár og var hann á samningi hjá Liverpool frá 2002 til 2005.

Framherjinn átti erfitt uppdráttar á Anfield og skoraði aðeins 6 mörk í 79 leikjum fyrir félagið.

Hann var í viðtali á BeIN Sports fyrr í maí og barst talið að Jamie Carragher, fyrrum liðsfélaga hans hjá Liverpool.

„Hann var réttfættur leikmaður með tvo vinstri fætur," sagði Diouf.

„Hefði hann ekki verið 'Scouser', einn af sonum Liverpool, þá hefði hann aldrei átt svona farsælan feril."
Athugasemdir
banner
banner