Fimm leikir fara fram í 7. umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld. Umferðin lýkur síðan á laugardaginn þegar Leiknir R. og Þór Akureyri mætast í Breiðholtinu.
Enn er einn leikur eftir í 6. umferðinni sem fer fram 17. júní og því er ekki hægt að gefa það út hvað Arnþór Ari Atlason spáði mörgum leikjum rétt í þeirri umferð. Nú er hinsvegar komið að Davíð Erni Atlasyni leikmanni Víkings R. að spá í 7. umferðina.
Enn er einn leikur eftir í 6. umferðinni sem fer fram 17. júní og því er ekki hægt að gefa það út hvað Arnþór Ari Atlason spáði mörgum leikjum rétt í þeirri umferð. Nú er hinsvegar komið að Davíð Erni Atlasyni leikmanni Víkings R. að spá í 7. umferðina.
Magni 1 - 1 Njarðvík (17:00 í dag)
Magni hefur verið að ná í sín stig á heimavelli og þeir ná í eitt stig gegn Njarðvíkingum. Gunnar Örvar skorar.
Fjölnir 1 - 0 Víkingur Ólafsvík (19:15 í kvöld)
Þetta verður leiðinlegur leikur þar sem liðin verða hrædd að tapa stigum. Fjölnir nær þó að pota inn einu marki undir lokin. Valdimar Ingi Jónsson skorar sigurmarkið.
Keflavík 2 - 2 Þróttur (19:15 í kvöld)
Keflavík hefur aðeins slakað á eftir frábæra byrjun á mótinu og sömuleiðis hafa Þróttarar rifið sig aðeins í gang eftir erfiða byrjun. Bæði lið hafa skorað mikið af mörkum í fyrstu leikjunum og því spái ég 3-3 jafntefli.
Fram 2 - 0 Grótta (19:15 í kvöld)
Fram heldur sér í baráttunni um sæti í Pepsi Max deildinni með þessum sigri. Helgi Guðjónsson skorar sennilega tvö.
Afturelding 2 - 1 Haukar (19:15 í kvöld)
Gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Arnar Hallsson þjálfaði mig í öðrum flokki og ég veit að hann mun leggja leikinn vel upp sem skilar þremur stigum í hús. Jökull Jörvar, frændi, skorar eitt fyrir Aftureldingu.
Leiknir R. 0 - 2 Þór (16:00 á laugardaginn)
Ég held að Þórsarar fljúgi upp úr Inkasso í sumar. Alvaro Montejo heldur áfram að skora og Jónas Björgvin bætir við öðru.
Sjá fyrri spámenn:
Sindri Snær Magnússon (3 réttir)
Sigurður Egill Lárusson (3 réttir)
Björgvin Stefánsson (3 réttir)
Aron Bjarnason (2 réttir)
Arnar Sveinn Geirsson (1 réttur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir