Trausti Sigurbjörnsson markvörður Aftureldingar verður ekki með liðinu í leiknum gegn Haukum í kvöld í 7. umferð Inkasso-deildarinnar.
Óljóst er hvenær og hvort hann leiki meira með liðinu í sumar en hann er puttabrotinn. Hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna brotsins.
Óljóst er hvenær og hvort hann leiki meira með liðinu í sumar en hann er puttabrotinn. Hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna brotsins.
Afturelding er í 10. sæti deildarinnar eftir sex umferðir. Eins og fyrr segir, tekur liðið á móti Haukum í kvöld en Haukar eru í 11. sæti deildarinnar með þrjú stig og því gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið.
Andri Þór Grétarsson hefur staðið vaktina í marki Aftureldingar í síðustu tveimur leikjum.
Athugasemdir