Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. júní 2019 12:12
Arnar Daði Arnarsson
Cloé Lacasse fær íslenskan ríkisborgararétt
Cloé Lacasse er komin með íslenskan ríkisborgararétt.
Cloé Lacasse er komin með íslenskan ríkisborgararétt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cloé Lacasse leikmaður ÍBV fær íslenskan ríkisborgararétt en Cloé er fædd árið 1993 í Kanada.

Cloé hefur leikið með ÍBV undanfarin fimm tímabil og heldur betur slegið í gegn í Vestmannaeyjum. Hún hefur skorað 59 mörk í 86 leikjum með ÍBV í efstu-deild og í bikarkeppni KSÍ, þar af 50 mörk í 73 leikjum í efstu deild.

„Þetta er langt ferli og við erum enn að vinna í því," sagði Cloé í samtali við Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði en nú er þetta orðið (Staðfest).

Alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd Alþing­is legg­ur til að Cloé Lacasse öðlist ís­lensk­an rík­is­borg­ara­rétt. Vonast er til að Alþingi samþykki tillöguna fyrir þinglok í sumar.

Cloé ræddi um ríkisborgararéttinn í viðtali á Fótbolta.net árið 2017 þar sem hún sagði að það yrði heiður að fá tækifæri til að spila með íslenska landsliðinu.

Cloé hefur þrívegis verið í úrvalsliði umferðarinnar í sumar. Hún hefur verið lykilmaður hjá ÍBV liðinu síðan kom til félagsins.


Athugasemdir
banner
banner