Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 14. júní 2019 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Alþjóðlegu Knattspyrnubúðirnar á Akureyri 17.-20. júní
Mynd: Coerver
Mynd: Coerver
Mynd: Coerver
Alþjóðlegu Knattspyrnubúðirnar verða á Akureyri 17.-20. júní næstkomandi.

Knattspyrnubúðirnar eru samstarfsverkefni Coerver Coaching og Knattspyrnufélags Akureyrar og fara nú fram í þriðja sinn.

Hér kynningarmyndband frá námskeiðinu

Allir þjálfarar koma frá Coerver Coaching og eru frá Noregi, Skotlandi og Íslandi.

Erlendu þjálfararnir starfa með atvinnumannaliðum í sínum löndum og sjá um tækniæfingar og ráðgjöf fyrir akademíu starf félaganna(þýðendur verða fyrir yngstu iðkendurna).

Íslenski þjálfarinn á námskeiðinu er Heiðar Birnir Torleifsson yfirþjálfari Coerver Coaching á Íslandi og núverandi þjálfari B71 í Færeyjum.

Erlendu þjálfararnir vinna með afreksleikmönnum á hverjum degi en hafa einnig víðtæka reynslu af grasrótarstarfi sem þeir starfa einnig í.

Með það að leiðarljósi bjóðum við upp á þjálfara með einstaka víðtæka færni. Grundvöllurinn er svo hin einstaka hugmynda og kennsluáætlun Coerver Coaching.

Um er að ræða námskeið með frábærum æfingum og hugmyndafræði framkvæmdar af heimsklassa þjálfurum.

Námskeiðið stendur yfir í 4 heila daga og lofum við góðri og lærdómsríkri reynslu fyrir alla þátttakendur.

Skráning er í fullum gangi og fer fram hér

Hér eru skilaboð frá Brad Douglass fræðslustjóra Coerver Coaching

Dagskrá:

Iðkendur f. 2009-2011
Kl. 09.00-10.30 Coerver Coaching æfing
Kl.10.30-12.00 Fyrirlestur og hvíld
Kl. 12.00-13.00 Heitur matur í Lundaskóla
Kl. 13.00-14.30 Coerver Coaching æfing

Iðkendur f. 2005-2008
Kl. 10.45-12.15 Coerver Coaching æfing
Kl. 12.15-13.15 Heitur matur í Lundaskóla
Kl. 13.15.-14.45 Fyrirlestur og hvíld
Kl. 14.45-16.15 Coerver Coaching æfing

Verð: kr. 22.900,- (fyrir fjóra heila daga af hágæða æfingum framkvæmda af heimsklassa þjálfurum).

10% systkina afsláttur

Alli iðkendur fá Coerver treyju frá Adidas
Athugasemdir
banner
banner
banner