Skærasta fótboltastjarna Íslands, Gylfi Þór Sigurðsson, mun á laugardaginn ganga í hjónaband.
Athöfnin fer fram á Ítalíu, við Como-vatnið, og má búast við því að mikið verði um dýrðir.
Gylfi og kærasta hans Alexandra Helga Ívarsdóttir munu þá giftast í góðra vina hópi.
Athöfnin fer fram á Ítalíu, við Como-vatnið, og má búast við því að mikið verði um dýrðir.
Gylfi og kærasta hans Alexandra Helga Ívarsdóttir munu þá giftast í góðra vina hópi.
Gylfi, sem leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Everton, bað Alexöndru Helgu í fríi á Bahama-eyjum síðasta sumar en þau opinberuðu samband sitt 2011.
Á Instagram í dag birtu Gylfi og Alexandra myndir af sér í einkaflugvél á leið frá Mílanó til Como.
Athugasemdir