„Eðlilega léttist aðeins lundin að ná í 3 stig hérna á heimavelli,'' sagði Páll Viðar Gíslason, þjálfari Magna eftir 3-2 sigur á Njarðvíkingum í Inkasso deild karla. „Við erum ennþá hálf sárir að hafa ekki náð í þau fleiri, en þetta verður langt sumar eins og við vissum. Það verður að fagna þessum þremur stigum sem loksins komu og reyna svo að krækja í fleiri - þá helst á útivöllum, það er mission, samt ekki mission impossible!''
Lestu um leikinn: Magni 3 - 2 Njarðvík
„Þetta er það sem ég hef verið að væla og skæla og kalla eftir þegar við förum yfir Öxnadalsheiðina,'' sagði hann þegar talað var um baráttu og dugnað Magnamanna í leiknum í dag.
Hann bætti við: „Þetta þarf að vera til staðar, alveg sama hvar maður er að spila. Ef það er, þá kemur kannski eins bersýnilega í ljós munur á fótboltalegri getu.''
Þegar hann var spurður út í vítaspyrnudómana sagði hann: „Báðir já og nei, þetta er aksjón sem að ákvörðun er tekin um og féll með okkur í dag. Heilt yfir bitnaði dómgæslan jafnt á báðum liðum.''
Gunnar Örvar Stefánsson og Aron Elí Gíslason spiluðu frábærlega í dag og Páll hrósaði þeim: „Já, þeir ásamt félögunum lögðu allt í leikinn og keyrðu sig út. Þetta smitar út frá sér til hinna. Þeir stóðu uppi sem sigurvegarar í dag og það er mjög jákvætt á þessum erfiðu tímum í stigasöfnun.''
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir