Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. júní 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Modric vildi ekki gefa Hazard treyjunúmerið sitt
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, nýr leikmaður Real Madrid, mun leika í treyju númer 7 hjá félaginu. Þetta er treyjan sem Cristiano Ronaldo klæddist hjá félaginu.

Hazard var númer 10 hjá Chelsea og er einnig með það númer hjá belgíska landsliðinu.

Þegar hann var kynntur til leiks hjá Real Madrid viðurkenndi hann að hann hefði reynt að fá það treyjunúmer líka hjá Real Madrid. Luka Modric er númer 10 hjá Madrídarstórveldinu.

„Ég hef talað við Modricí gegnum (Mateo) Kovacic," sagði Hazard, en hann og Kovacic léku saman hjá Chelsea. Kovacic er frá Króatíu eins og Modric. „Ég grínaðist í honum að ég vildi fá treyju númer 10. Hann sagði nei og því þurfti ég að fá nýtt númer."

„Núna skiptir númerið ekki máli, ég vil bara spila fyrir þetta merki, þetta félag."

Sjá einnig:
Kölluðu eftir Mbappe er Hazard var kynntur í Madríd
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner