Keflavík tapaði sínum öðrum heimaleik í Inkasso deildinni í röð í kvöld þegar liðið tók á móti Þrótti á Nettó vellinum í Keflavík í kvöld.
Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik leiddi Keflavík 1-0 en eftir 20 mínútur í þeim síðari höfðu gestirnir snúið leiknum sér í vil og leiddu 1-3 sem urðu að endingu lokatölur leiksins.
Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik leiddi Keflavík 1-0 en eftir 20 mínútur í þeim síðari höfðu gestirnir snúið leiknum sér í vil og leiddu 1-3 sem urðu að endingu lokatölur leiksins.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 3 Þróttur R.
„Við erum bara rassskellti og það er labbað yfir okkur á okkar eigin heimavelli á einhverjum 15-20 mínútum og fáum á okkur 3 mörk sem er bara ekki boðlegt," sagði Sindri Kristinn Ólafsson markvörður Keflavíkur um leikinn í kvöld.
Eftir kröftuga byrjun hefur Keflavík fatast flugið að undanförnu. Þurfa menn ekki að fara að svara fyrir sig á vellinum?
„Jú alveg klárlega við erum núna bunir að tapa 2-3 leikjum af síðustu 4 og fólk er í einhverju panikki en það vissi alveg þegar við fórum inní þetta season að við erum með yngsta lið í efstu tvemur deildunum og þetta er upp og niður þegar þú ert með ungt lið."
Keflavík er líkt og Sindri sagði með eitt yngsta liðið í Inkasso deildinni og spurði fréttaritari. Ungt lið, ungir leikmenn, fljótir að læra?
„Fljótir að læra, við erum náttúrulega með gífurlega ungt lið en við getum ekki endalaust falið okkur á bak við það að vera með ungt lið það eru margir ungir leikmenn hérna komnir með 50-60 leiki í meistaraflokki í Pepsi og Inkasso.“
Sagði Sindri Kristinn en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir