Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. júní 2019 11:30
Elvar Geir Magnússon
Rabiot í viðræðum við Juventus
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Adrien Rabiot hefur staðfest að hann sé í viðræðum við Juventus.

Rabiot neitaði að skrifa undir nýjan samning við Paris Saint-Germain síðasta tímabil og var í kjölfarið kastað í frystikistuna hjá franska félaginu.

Rabiot hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United og þá var talað um að hann gæti jafnvel tekið óvænta U-beygju og verið áfram hjá PSG.

Rabiot er sem stendur í sumarfríi með fjölskyldunni en hefur staðfest í samtali við fjölmiðla að hann hafi verið í sambandi við Ítalíumeistara Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner