Sheffield United virðist ætla sér stóra hluti fyrir ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili.
Franck Ribery, goðsögn hjá Bayern München, hefur verið orðaður við félagið og núna er Antonio Valencia, fyrrum fyrirliði Manchester United, einnig orðaður við nýliðana.
Franck Ribery, goðsögn hjá Bayern München, hefur verið orðaður við félagið og núna er Antonio Valencia, fyrrum fyrirliði Manchester United, einnig orðaður við nýliðana.
Hinn 33 ára gamli Valencia verður án félags þegar samningur hans við Manchester United rennur út eftir nokkrar vikur.
Í frétt Daily Mail segir að Sheffield United sé eitt þeirra félaga sem hafi gert honum tilboð.
Nokkur félög frá Bandaríkjunum eru einnig sögð áhugasöm um Valencia.
Sheffield United hafnaði í öðru sæti Championship-deildarinnar og mun leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir