Höskuldur skoraði tvö: Var með ágætis tilfinningu í nýjum skóm
Jón Þór: Þessi leikur á eftir að nýtast okkur helling
Dóri staðfestir viðræðuslitin: Var kannski ekki eins og menn höfðu séð fyrir sér
Gummi Tóta: Vonaðist til að hjálparvörnin kæmi
Andri Lucas: Vonandi komumst við á stórmót eins fljótt og hægt er
Daníel Leó: Menn eru ennþá í áfalli
Hákon Arnar: Ég vona það fyrir framtíðina
Stefnan er sett á HM - „Maður lærir mest þegar á móti blæs“
„Ekkert eðlilega svekkjandi, ömurlegt bara"
Jói Berg: Grátlegt að vera svona nálægt þessu og ná ekki á EM
Jón Dagur: Líður eins og tímabilið sé búið
Hareide lítur björtum augum á framtíðina - „Þurfum fleiri varnarmenn"
Furðar sig á ákvörðun Rebrov - „Held að Guðmundsson skori"
Beðið um mynd í miðju viðtali - „Ef þú syngur með okkur í 90 mínútur þá ertu í Tólfunni"
Joey Drummer: Besta stund sem ég hef upplifað
Siggi Bond með innherjaupplýsingar fyrir leikinn í kvöld
Sjáðu auglýsinguna fyrir Bestu deildina 2024 - Þekkt andlit í nýjum aðstæðum
27 þúsund miðar seldir á Úkraína - Ísland í Wroclaw skálinni
Víðir Sig: Væri gaman ef annar draumur myndi rætast í þessari borg
Jói bjartsýnn á að geta spilað - „Það róaði taugarnar ansi mikið"
banner
   fös 14. júní 2019 22:50
Sverrir Örn Einarsson
Brynjar Björn: Erfitt að kyngja þessu
Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar Björn Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK þurfti að gera sér að góðu að lúta í gras gegn Víkingum í vígsluleik í Víkinni er kvöld þegar liðin mættust í Pepsi Max deildinni. Eftir að Víkingar fóru með 2-1 forystu til búningsherbergja í hálfleik tóku gestirnir úr Kópavogi völdin á vellinum en þrátt fyrir nokkur færi og sláarskot vildi boltinn ekki í netið og niðurstaðan því 2-1 tap.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 HK

„Við áttum möguleika og tækifæri á að jafna leikinn en fyrri hálfleikurinn var jafn en við hefðum geta misst leikinn frá okkur og fengið á okkur þriðja markið og verið tveimur mörkum undir í hálfleik en það gerðist ekki og í upphafi síðari hálfleiks vorum við inn í leiknum og vorum sterkari, sóttum meira og þeir fá ekki færi í seinni hálfleik en við náum ekki að skapa nógu mikið af dauðafærum,“
sagði Brynjar Björn, þjálfari HK, um leik sinna manna í kvöld.

HK sótti því sem næst linnulaust síðustu 20 mínútur leiksins og skapaði sér nokkur áltileg færi en inn vildi boltinn ekki.

„Það fór sláin út hjá okkur úr aukaspyrnu á síðustu mínútu og bara erfitt að kyngja þessu við leggjum allt í þetta og gerum betur í seinni hálfleik en þeim fyrri og við töluðum um það inní klefa að það var ekki alveg boðlegt það sem við sýndum í fyrri hálfleik.“

Sagði Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner