Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 16. júní 2019 23:37
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu glæsilegt mark Usain Bolt eftir mistök Carragher
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher og Usain Bolt voru andstæðingar í fjörugum góðgerðarleik sem fór fram fyrr í kvöld.

Carragher var í liði Englendinga í leiknum á meðan Bolt og félagar mynduðu heimsliðið. +
Staðan var 2-0 fyrir England þegar heimsliðið minnkaði muninn með glæsilegu marki frá Bolt sjálfum, sem gafst nýverið upp á draumi sínum um að verða atvinnumaður í knattspyrnu.

Markið sem Bolt skoraði má sjá hér fyrir neðan, en varnarvinna Carragher hefur verið gagnrýnd á Twitter þar sem hann misreiknaði flug boltans og sinn eigin stökkkraft.

Gary Neville var að sjálfsögðu mættur á Twitter til að gera grín af samstarfsmanni sínum. Hann hefur verið að endurlauna greiðann frá því þegar Carragher birti myndband úr svipuðum góðgerðarleik. Neville var þá í góðu færi en skot hans var nær því að fara í innkast heldur en að hitta á rammann.













Athugasemdir
banner
banner