Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. júní 2019 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Napoli kaupir David Ospina (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Napoli er búið að festa kaup á kólumbíska markverðinum David Ospina sem lék hjá félaginu að láni á síðasta tímabili.

Napoli greiðir 4 milljónir punda fyrir Ospina sem verður 31 árs í ágúst. Hann kemur frá Arsenal og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning.

Ospina er aðalmarkvörður kólumbíska landsliðsins og átti góðan leik er Kólumbía lagði Argentínu að velli í Suður-Ameríkubikarnum á dögunum. Hann varði sex skot og hélt hreinu.

Hann lék fyrir Nice áður en hann var keyptur til Arsenal fyrir 3 milljónir punda sumarið 2014.

Ospina spilaði annan hvern leik Napoli á liðnu tímabili þar sem hann var í stöðugri baráttu við Alex Meret og Orestis Karnezis um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir
banner
banner