Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 18. júní 2019 16:30
Elvar Geir Magnússon
Gerrard hefur ekki áhuga á Derby
Steven Gerrard.
Steven Gerrard.
Mynd: Getty Images
Daily Mail segir að Steven Gerrard hafi sagt Derby County að hann hafi engan áhuga á að taka við sem stjóri félagsins.

Sagt er að Derby hafi heyrt í Gerrard þar sem miklar líkur eru taldar á því að Frank Lampard muni taka við Chelsea.

Derby komst í úrslitaleik umspils Championship-deildarinnar en beið þar lægri hlut.

Gerrard er byrjaður á fullum krafti í undirbúningi fyrir næsta tímabil hjá Rangers en hann hefur verið stjóri félagsins í eitt ár.

Derby hefur verið orðað við John Terry sem er aðstoðarstjóri Aston Villa en hann hefur metnað til að verða aðalstjóri.
Athugasemdir
banner
banner
banner