þri 18. júní 2019 14:59
Elvar Geir Magnússon
West Ham vill fá Anthony Martial
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: Getty Images
Daily Mail hefur sagt að West Ham hafi gert móttilboð eftir að Manchester United reyndi að fá varnarmanninn Issa Diop.

West Ham ku hafa hafnað 40 milljóna punda tilboði frá United og sagt að félagið sé bara til í að selja ef Anthony Martial er hluti af samkomulaginu.

West Ham er tregt til að selja hinn 22 ára Diop sem keyptur var frá Toulouse á 22 milljónir punda í fyrrasumar. Félagið hefur þó mikinn áhuga á að fá franska sóknarleikmanninn Martial sem ekki hefur náð þeim hæðum á Old Trafford sem vonast var eftir.

Sumarglugginn hefur verið ansi rólegur hjá Manchester United hingað til en Ole Gunnar Solskjær vill fá nýjan miðvörð.

Harry Maguire hjá Leicester og Kalidou Koulibaly hjá Napoli hafa verið orðaðir við félagið en ljóst er að það þarf að spenna bogann hátt til að fá þá.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner