Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 19. júní 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Makelele að snúa aftur til Chelsea?
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar halda því fram að Claude Makelele sé á leiðinni til Chelsea þar sem hann mun taka að sér einhversskonar þjálfarastarf innan félagsins.

Makelele er ekki eina goðsögnin sem er að snúa aftur á Stamford Bridge en líklegt þykir að Frank Lampard sé næsti stjóri liðsins.

Petr Cech mun að öllum líkindum einnig taka að sér starf hjá félaginu en hann lék sinn síðasta leik fyrir Arsenal gegn einmitt Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Makelele hætti á dögunum sem stjóri belgíska félagsins KAS Eupen en starfar þó enn sem sendiherra félagsins.

Hann lék með Chelsea á árunum 2003-2008 og á að baki tæplega 150 leiki fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner