Spænsku félögin Barcelona og Valencia eru sögð hafa gert munnlegt samkomulag um að skipta á markvörðunum Jasper Cillessen og Neto.
Liðin myndu skipta á sléttu en báðir markverðir eru metnir á 30 milljónir evra. Cillessen myndi halda sömu launum á meðan Neto myndi tvöfalda sín laun.
Cillessen er sagður vilja spila fleiri leiki en á þremur árum hjá Barcelona hefur hann einungis komið við sögu í 32 leikjum. 24 þeirra hafa verið í spænsku bikarkeppninni.
Neto gekk í raðir Valencia árið 2017 og hefur verið aðalmarkvörður liðsins síðan þá.
Athugasemdir