Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 19. júní 2019 22:28
Hilmar Jökull Stefánsson
Ási Arnars: Auðvitað stefnum við á að vera efstir
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var að vonum ánægður með sína menn eftir leikinn gegn Þrótti í dag.

„Ég er bara ánægður eftir þennan leik, er bara ánægður með liðið og fannst við heilt yfir betri í leiknum. Eina sem vantaði kannski upp á var að skora fleiri mörk. Við sköpuðum okkur fullt af góðum færum en nýttum það ekki alveg nógu vel en gerðum nóg.“

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  1 Fjölnir

Inntur eftir viðbrögðum eftir leik hafði Ási þetta að segja:

„Við héldum hreinu, skoruðum eitt mark og fengum 3 stig gegn einu heitasta liði deildarinnar sem er búið að vinna tvo sterka sigra undanfarið og Þróttaraliðið er hörkulið þannig ég er bara gríðarlega ánægður með þennan sigur.“

Spurður út í stöðuna í deildinni og hvort að hans menn stefndu ekki á toppsætið sagði Ási: „Auðvitað stefnum við á það og erum að vinna í því. Ánægður meðan við erum þar.“

Dómgæslan var ekki upp á marga fiska í leiknum.

„Dómgæslan er eitt af því sem við höfum ekki stjórn á og við þurfum að vinna út frá því, þeir stjórna leiknum. Þannig ég ætla ekki að kommenta meira á það."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner