Ítalski markvörðurinn, Gianluigi Buffon er að snúa aftur til Juventus frá PSG en Buffon mun skrifa undir eins árs samning við félagið.
Buffon þekkir vel til hjá Juventus en hann lék lengi með félaginu og var aðalmarkvörður liðsins áður en hann gekk til liðs við PSG í fyrra.
Hann verður hins vegar ekki aðalmarkvörður liðsins og verður varamarkvörður fyrir Wojciech Szczesny.
Buffon sem var 41 árs í janúar á þessu ári á 176 landsleiki að baki með ítalska landsliðinu. Hann hefur leikið með Parma, Juventus og PSG á ferli sínum. Hann lék 17 tímabil með Juventus áður en hann lék eitt tímabil með PSG.
BREAKING: Gigi Buffon is set to return to Juventus. He’s close to agreeing a one-year contract and he’ll be Wojciech Szczęsny’s back-up. (Source: @FabrizioRomano) pic.twitter.com/UkXLnVddPw
— Transfer News Live (@DeadlineDayLive) June 25, 2019
Athugasemdir