Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 26. júní 2019 14:27
Elvar Geir Magnússon
Jói Berg einn af fáum sem komust framhjá Wan-Bissaka
 Aaron Wan-Bissaka.
Aaron Wan-Bissaka.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur náð samkomulagi við Crystal Palace um kaup á Aaron Wan-Bissaka, eins og við greindum frá í dag.

Bakvörðurinn ungi átti frábært tímabil með Palace og átti fleiri tæklingar en nokkur annar varnarmaður í deildinni.

Squawka segir frá því á Twitter að aðeins níu leikmönnum hafi tekist að komast framhjá Wan-Bissaka á liðnu tímabili. Þar á meðal var Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Burnley og íslenska landsliðsins.



Athugasemdir
banner
banner
banner