Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. júní 2019 22:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Risatilboð Atletico í Felix staðfest - 126 milljónir evra
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Atletico Madrid er búið að bjóða 126 milljónir evra í portúgalska undrabarnið Joao Felix. Benfica staðfestir þetta með yfirlýsingu í kvöld.

Felix skoraði 20 mörk og átti 11 stoðsendingar í 43 leikjum fyrir portúgalska félagið Benfica á liðnu tímabili. Hann er aðeins 19 ára gamall.

Búist er við því að hann muni leysa Antoine Griezmann af hjá Atletico. Griezmann er á förum frá Atletico, væntanlega til Barcelona.

Riftunarákvæði er í samningi Felix upp á 120 milljónir evra. Atletico er ekki búið að virkja það, þar sem tilboð Atletico felur það í sér að upphæðin verði ekki greidd öll í einu.

Ef kaupin ganga í gegn verður Joao Felix fjórði dýrasti leikmaður fótbioltasögunnar.

Atletico hafnaði í öðru sæti spænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.



Athugasemdir
banner
banner
banner