„Þetta er svekkelsi. Leiðinlegt að geta ekki sett mark. Við vorum að sækja og sækja og nýttum ekki færin okkar,“ sagði Margrét Regína Grétarsdóttir, fyrirliði Aftureldingar, eftir eins marks tap gegn Augnablik í kvöld.
Lestu um leikinn: Augnablik 1 - 0 Afturelding
Eftir jafnan fyrri hálfleik tókst Aftureldingu að setja meiri kraft í sóknarleikinn í þeim seinni. Þær áttu þónokkuð af ágætum sénsum en tókst ekki að klára sóknirnar sínar nógu vel.
„Viljinn var fyrir hendi og við vorum búnar að ræða þetta í hálfleik. Við ætluðum að stíga upp. Við hefðum kannski mátt gera það fyrr. Við breyttum í þriggja manna vörn svolítið seint og lágum þá á þeim en þetta er eitthvað sem við þurfum að klára betur í næstu leikjum.“
Margrét var eðlilega hundsvekkt með tapið en segir vera stíganda í liðinu sínu og telur að liðið geti haldið áfram að bæta sig.
„Við erum með fullt af góðum stelpum. Við erum með stóran hóp og allar sem eru að koma inn af varamannabekknum eru að standa sig þannig að það er gríðarleg samkeppni í liðinu sem er frábært.“
Nánar er rætt við Margréti í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir