Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. júní 2019 09:53
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Rooney skoraði frá eigin vallarhelmingi
Rooney er öflugur í langskotunum.
Rooney er öflugur í langskotunum.
Mynd: Getty Images
Hver man eftir markinu sem Wayne Rooney skoraði fyrir Manchester United frá miðjulínunni gegn West Ham tímabilið 2013-14?

Hann skoraði af lengra færi fyrir Everton gegn sama andstæðingi tímabilið 2017-18.

Og nú hefur hann skorað frá eigin vallarhelmingi fyrir DC United í bandarísku MLS-deildinni. Hann skoraði gegn Orlando City og reyndist þetta eina mark leiksins!

Rooney er 33 ára og skoraði 12 mörk í 21 leik á sínu fyrsta tímabili. Hann er með 8 mörk í 14 leikjum á þessu tímabili.



Athugasemdir
banner
banner