Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. júlí 2019 17:30
Brynjar Ingi Erluson
Jeremy Toljan frá Dortmund til Sassuolo (Staðfest)
Jeremy Toljan er farinn á lán til Sassuolo
Jeremy Toljan er farinn á lán til Sassuolo
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Sassuolo hefur tryggt sér þýska varnarmanninn Jeremy Toljan á láni frá Borussia Dortmund út tímabilið.

Toljan er 24 ára gamall bakvörður en hann lofaði afar góðu á yngri árum er hann spilaði fyrir bæði Stuttgart og Hoffenheim.

Hann var keyptur til Dortmund árið 2017 en náði aldrei að stimpla sig inn í liðið af krafti.

Hann var á láni hjá Celtic seinni hluta síðasta tímabils en hefur nú verið lánaður til ítalska félagsins Sassuolo.

Ítalska félagið á möguleika á að kaupa hann fyrir 8 milljónir evra en honum er ætlað að leysa af Pol Lirola sem er á leið til Fiorentina á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner